Kynbótasýningar Ekki seinna vænna en huga að kynbótahrossunum fyrir vorið

  • 20. janúar 2024
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Pétur Halldórsson, ráðunaut og sýningarstjóra hjá RML.

Blaðamaður Eiðfaxa brunaði austur á Hvolsvöll og átti þar gott spjall við Pétur Halldórsson, sýningarstjóra og ráðunaut hjá Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins.

Þeir tóku ýmislegt fyrir s.s. þau formsatriði sem kynbótahross verða að uppfylla áður en kemur að dómi, nýtingu DNA-sýna hrossa í nútíð og framtíð til að styðja og efla ræktunarstarfið. Þá fékk blaðamaður einnig verklegt námskeið í sýnatökum hrossa, hvernig standa ætti að sýnatöku og gagnaskilum.

Vorið nálgast óðfluga og heppilegast fyrir alla að ætternisstaðfestingar kynbótahrossa og önnur formsatriði stóðhesta (hæklamyndir og blóðsýni hjá 5 vetra og eldri hestum) séu fyrirliggjandi í upprunaættbókinni WorldFeng þegar sýningatímabilið hefst. Það er því ekki eftir neinu að bíða.

Áhugaverðir tenglar sem tengjast DNA hrossa og mælingum m.a.:

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link