Uppsveitadeild Íshesta 2013

  • 23. febrúar 2013
  • Fréttir
Uppsveitadeild Íshesta 2013

Frábærar sýningar og rífandi stemning í troðfullri reiðhöll

“Rífandi stemning og eftirvænting ríkti þegar áhorfendur troðfylltu reiðhöllina á Flúðum föstudagskvöldið 22.febrúar þegar fyrsta mót í Uppsveitadeild Íshesta fór fram.  

Keppt var í fjórgangi og liðin sjö tefldu fram sínu bestu hestum.  Þar á meðal voru þekkt nöfn og aðrar vonarstjörnur. 

Eftir forkeppni var Ólafur Ásgeirsson á glæsihestinum Hugleik frá Galtanesi efstur með 7,23 í aðaleinkunn, í öðru sæti Helga Una Björnsdóttir á Bikar frá Syðri-Reykjum með 7,17 og Guðmann Unnsteinsson á Prins frá Langholtskoti með 6,67 og Þórarinn Ragnarsson á Björk frá Enni með 6,57.  Þessir knapar voru öruggir í A-úrslit en Sigurbjörg Bára Björnsdóttir  á Blossa frá Vorsabæ II vann sig upp úr B-úrslitum í A-úrslit.

Í úrslitum snerist við röð efstu knapa og stóð Helga Una Björnsdóttir efst og sigraði á Bikar frá Syðri-Reykjum með 7,77 eftir stórglæsilega sýningu.  Ólafur Ásgeirsson á Hugleik frá Galtanesi varð í öðru sæti með 7,57 og Guðmann Unnsteinsson í þriðja sæti með 6,90.

Eftir fyrsta mót er lið Baldvins og Þorvalds í efsta sæti með 19 stig og lið Kílhrauns í öðru sæti með 12 stig.  Í þriðja sæti er lið Stuðmanna með 8 stig. Frumherjar eru með 7 stig, North Rock er með 5 stig Jáverk með 4 og Víkingarnir reka lestina.

Mótið gekk mjög og feiknagóð stemning var meðal áhorfenda sem nutu sýninga.  Stór hópur skagfirskra hestamanna sem kallast Riddarar norðursins sem höfðu gert sér ferð suður yfir heiðar glöddu gesti með söng í hléi og uppskáru mikil fagnaðarlæti. 

Næsta keppni verður fimmgangur föstudagskvöldið 15.mars,

 

IS2013LOG020 – Uppsveitadeild Íshesta 2013

 Mótshaldari: Reiðhöllin á Flúðum

 Dagsetning: 22.2.2013 – 22.2.2013

 

FJóRGANGUR V1

1. flokkur

Forkeppni

Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn

1 Ólafur Ásgeirsson   Hugleikur frá Galtanesi Rauður/milli- einlitt   Smári 7,23 

2 Helga Una Björnsdóttir   Bikar frá Syðri-Reykjum Brúnn/milli- einlitt   Smári 7,17 

3 Guðmann Unnsteinsson   Prins frá Langholtskoti Jarpur/ljós einlitt   Smári 6,67 

4 Þórarinn Ragnarsson   Björk frá Enni Brúnn/milli- einlitt   Smári 6,57 

5 Líney Kristinsdóttir   Rúbín frá Fellskoti Brúnn/milli- einlitt   Logi 6,27 

6 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir   Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,20 

7 Sólon Morthens   Kolbakur frá Hólshúsum Brúnn/milli- einlitt   Logi 6,13 

8 Hólmfríður Kristjánsdóttir   Þokki frá Þjóðólfshaga 1 Brúnn/milli- einlitt   Smári 5,90 

9 Aðalsteinn Aðalsteinsson   Hekla frá Ásbrekku Rauður/milli- stjörnótt   Smári 5,83 

10 María Birna Þórarinsdóttir   Mávur frá Stóra-Vatnsskarðir Rauður Logi 5,63 

11 Þorsteinn Gunnar Þorsteinss.   Gyllir frá Hellu Móálóttur,mósóttur/milli-… Smári 5,47 

12 Sölvi Arnarsson   Elliði frá Efsta-Dal II Brúnn/milli- einlitt   Trausti 5,40 

13 Gunnlaugur Bjarnason   Andrá frá Blesastöðum 2A Brúnn/milli- einlitt   Smári 5,27 

14 Bjarni Bjarnason   Hnokki frá Þóroddsstöðum Brúnn/milli- einlitt   Trausti 5,10 

15 Knútur Ármann   Bríet frá Friðheimum Brúnn/milli- einlitt   Logi 5,00 

16 Bjarni Birgisson   Arkiles frá Blesastaðir 2A Rauður Smári 4,93 

17-18 Kristján Ketilsson   Diljá frá Fornusöndum Rauð/milli- tvístjörnótt Logi 4,83 

17-18 Guðjón Örn Sigurðsson   Gola frá Skollagróf Jarpur/milli- stjörnótt   Smári 4,83 

19 Hermann Þór Karlsson   Sörli frá Arabæ Móálóttur,mósóttur/milli-… Smári 4,80 

20 Jón Óskar Jóhannesson   Sóley frá Áskoti Bleikur/fífil- blesótt   Logi 4,57 

21 Kristbjörg Guðmundsdóttir   Blær frá Efsta-Dal I Rauður/milli- einlitt glófext Trausti 4,00 

B úrslit

Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn

1 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir   Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,63 

2 Sólon Morthens   Kolbakur frá Hólshúsum Brúnn/milli- einlitt   Logi 6,17 

3 Hólmfríður Kristjánsdóttir   Þokki frá Þjóðólfshaga 1 Brúnn/milli- einlitt   Smári 6,10 

4 Líney Kristinsdóttir   Rúbín frá Fellskoti Brúnn/milli- einlitt   Logi 6,07 

5 Aðalsteinn Aðalsteinsson   Hekla frá Ásbrekku Rauður/milli- stjörnótt   Smári 5,87 

A úrslit

Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn

1 Helga Una Björnsdóttir   Bikar frá Syðri-Reykjum Brúnn/milli- einlitt   Smári 7,77 

2 Ólafur Ásgeirsson   Hugleikur frá Galtanesi Rauður/milli- einlitt   Smári 7,57 

3 Guðmann Unnsteinsson   Prins frá Langholtskoti Jarpur/ljós einlitt   Smári 6,90 

4 Þórarinn Ragnarsson   Björk frá Enni Brúnn/milli- einlitt   Smári 6,57 

5 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir   Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,53 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link