Berglind Sveinsdóttir er nýr formaður Sleipnis

Hér tekur Berglind Sveinsdóttir á móti lyklunum af hestamannafélaginu Sleipni af fyrverandi formanni Sigríði Magneu Björgvinsdóttur.
Góð mæting var á fundinn, en það er mál manna að svona mæting hafi ekki sést í mörg ár.
Kosið var um tvö sæti í stjórn/varastjórn auk formanns. Berglind Sveinsdóttir er nýr formaður Sleipnis og með henni í stjórn/varstjórn eru Sólveig Pálmadóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir, Anna Björg Níelsdóttir, Sigurvaldi Rafn Hafsteinsson og Jón Valgeir Geirsson.

F.v. Sólveig Pálmadóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir, Berglind Sveinsdóttir, Anna Björg Níelsdóttir, Sigurvaldi Rafn Hafsteinsson og Jón Valgeir Geirsson.
