Undirbúningur fyrir keppni
Ert þú kominn í keppnisgírinn ?? Eða langar þig að vita hvernig atvinnumenn undirbúa og þjálfa sína hesta fyrir keppni ?? Sigurbjörn Bárðarson mun heimsækja okkur í Sörla á Sörlastaði og vera með fyrilestur á miðvikudagskvöldið 3. mars kl. 19:00, þar sem hann fer yfir undirbúning og þjálfun með keppni í huga.
Síðan á föstudagskvöldið 5. mars kl. 19:00 mun hann vera með sýnikennslu og fara á bak hestum frá Sörlafélögum. Sigurbjörn mun benda á það sem betur má fara, fara á bak hestunum, sýna þá og skýra vinnu sína og sýna í verki hvernig hann reynir að bæta þá.
Hér er í boði spennandi sýnikennslu hjá okkar mesta reynslubolta. Þetta láta hestamenn ekki fram hjá sér fara.
Fyrirlestur 3. mars kl. 19:00
Sýnikennsla 5. mars kl. 19:00
Staðsetning: Sörlastaðir Hafnarfirði
Aðgangseyrir: kr. 1000.-
Allir velkomnir,
Fræðslunefnd Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH