„Mjög óvænt en mjög gaman“
Mynd: Alendis.is
Þáttaröðin hófst í september þar sem fylgst var með vegferð fimm knapa og hrossa sem og kepptu í fimm þrautum yfir ákveðið tímabil. Síðast liðinn föstudaginn var krýndur sigurvegari þáttanna og var það Júlía Gunnarsdóttir sem fór með sigur úr býtum. Hún var með hryssuna Elju frá Skáney og höfðu dómarar orð á því að hún hefði mikla næmni fyrir þjálfunarhrossinu og hefði náð jöfnum og stígandi framförum.
“Það var systir mín sem sendi inn umsókn fyrir mig en hún hefur alltaf haft mikla trú á mér og reynt að ýta mér í að prófa nýja hluti. Ég lærði helling og var það mjög óvænt en ógeðslega gaman að vinna þetta,” segir Júlía.
Allir þáttakendurnir voru með hrossin sín saman í hesthúsi upp í Víðidal og sáu alfarið um þjálfun á hrossunum. Stundirnar með hinum keppendunum í hesthúsinu eru það sem stendur upp úr. “Það var alltaf gaman að eyða tíma með öllum hinum. Ég lærði fáránlega mikið t.d. lærði ég mikið betur að meðhöndla gengan hest, Elfa var mjög geng í byrjun en endaði á að vera það ekki. Ég lærði líka hvernig maður á að meðhöndla ungt hross. Það var ótrúlega mikið sem Benni og hinir reiðkennararnir sögðu sem opnaði augun,” segir Júlía sem er félagi í hestamannafélaginu Spretti. Hún hefur riðið út alla sína ævi og stefnir á að halda áfram og hafa gaman í sinni hestamennsku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH