Vetrarmót hjá Sleipni

  • 29. mars 2011
  • Fréttir
Vetrarmót hjá Sleipni

Þriðja opna vetramót Sleipnis verður haldið að Brávöllum Selfossi laugardaginn 2. apríl kl. 14 að er fram kemur í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu.

„Keppt verður í opnum flokki, áhugamannaflokki,1 og áhugamenn 2 sem er ætlaður minna vönu keppnisfólki. ungmennaflokki, unglingaflokki  barnaflokki og pollaflokki (má teyma pollana). Allir flokkar nema áhugamenn 2 keppa til stiga í mótaröðinni.

Skráningargjöld
Frítt fyrir börn og polla
500 kr unglingar
1000 kr ungmenni
1500 kr fullorðnir Sleipnisfélagar
2000 kr Aðrir

Röð flokka verður eftirfarandi; pollar, börn, unglingar, ungmenni, áhugamenn 1, áhugamenn 2, opinn flokkur.
Skráning kl. 12-13 í Hliðskjálf.

ATH. Mótið fer fram utandyra ef veður leyfir, annars í reiðhöll Sleipnis.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link