Meistaradeild Ungmenna og Top Reiter 2023 Lið Fákafars/Hestvits í Meistaradeild ungmenna

  • 25. janúar 2024
  • Fréttir
Liðakynning Meistaradeildar ungmenna og Top Reiter 2024

Undirbúningur fyrir Meistaradeild ungmenna og Top Reiter 2024 er hafin en fyrsta mótið verður 2. febrúar og þá verður keppt í fjórgangi. Deildin hefur hafið liðakynningu og næsta lið sem deildin kynnir til leiks er lið Fákafars/Hestsvits

Hér fyrir neðan er liðakynningin á liði Fákafar/Hestvits

Liðstjóri: Eydís Ósk Sævarsdóttir

Nafn: Eydís Ósk Sævarsdóttir

Hestamannafélag: Hörður

Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og vinn fyrir foreldra mína í hesthúsinu og einnig í sumarbúðum á sumrin.

Besti hestur sem þú hefur prófað? Blakkur frá Traðarholti, fjölhæfasti hestur sem ég veit um.

Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Klárlega Bárð frá Melabergi.

Hefur þú keppt á landsmóti? Já fyrsta skipti 2018 í barnaflokki og fór í B- úrslit og endaði í 15. Sæti, síðan í unglingaflokki 2022 en komst ekki eins langt þá.

Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já förum stundum í hestaferðir með vinafólki í sveitinni.

image.png

 

Nafn: Auður Karen Auðbjörnsdóttir 

Hestamannafélag: Léttir

Vinna/skóli? Ég hef mest unnið sjálfstætt heima á Gásum og svo í Litla-Garði og Garðshorni á Þelamörk í Eyjafirði.

Besti hestur sem þú hefur prófað? Erfitt að nefna einhvern einn en það eru Bára og Melódía frá Gásum og Gletta frá Hryggstekk.

Hvaða hest myndir þú vilja prófa? Bárð frá Melabergi

Hefur þú keppt á Landsmóti? Já 2018 en ég fór í botnlangauppskurð 10 dögum áður og gat þá ekkert æft svo það hefði getað gengið betur

Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já ég fer í margar hestaferðir á sumrin og finnst það eitt af því skemmtilegasta við hestamennskuna. Fórum sennilega um 700km í sumar í nokkrum ferðum

 

image.png

Nafn: Hjördís Helma Jörgensdóttir

Hestamannafélag: Dreyri

Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Galito á Akranesi sem þjónn síðan er ég í LBHÍ að læra landslagsarkítektúr.

Besti hestur sem þú hefur prófað?  Mía frá Fornusöndum. Fékk hana í fermingargjöf, hún er algjör fjölskyldu hestur. Síðan ntl Hrafn frá Þúfu í Kjós, besti vinur minn algjör gullmoli þessi hestur! 

Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Bárð frá melabergi!

Hefur þú keppt á landsmóti?  Keppti árið 2022.

Ferð þú í hestaferð á sumrin? Elska hestaferðir! Komst þvi miður ekki í fyrra:(

 

 

image.png

Nafn: Aníta Eik Kjartansdóttir

Hestamannafélag: Hörður

Vinna(hvar) eða skóli(hvaða)? Ég er að læra flugumferðarstjórn og er að vinna í útifataverslun og að þjálfa/temja

Besti hestur sem þú hefur prófað? Besti hesturinn sem ég hef prófað er Lóðar frá Tóftum hann mun alltaf vera minn uppáhalds

Hvað hest myndir þú vilja prófa ef þú fengir tækifæri til? Ætli það væri ekki bara Flóvent frá Breiðstöðum

Hefur þú keppt á landsmóti? Já ég hef keppt nokkrum sinnum á landsmóti

Ferð þú í hestaferð á sumrin? Já ég fer yfirleitt í hestaferðir á sumrin

 

image.png

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link