Allt á kafi í hestasýningum

  • 15. apríl 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Fróði frá Staðartungu verður á Fákum og fjöri á Akureyri. Knapi á myndinni er Þórður Þorgeirsson, en það er hinn knái knapi Egill Þórarinsson sem mun sitja hestinn í TopReiterhöllinni.

Reiðhallir landsins fullbókaðar á helginni

Hafi einhverjir óttast að kreppan dragi mátt úr hestafólki, þá er það röng tilfinning. Alla vega ef marka má framboð á allskyns sýningum og mótum sem í boði eru fyrir hestamenn. Liggur nærri að allar reiðhallir landsins séu fullbókaðar á komandi helgi. 

Skeifudagurinn á Hvanneyri verður haldinn í reiðhöllinni á Mið-Fossum á laugardaginn og hefst dagskráin klukkan 13.00. Nemendur Landbúnaðarháskólans keppa í frumtamningum um hina rómuðu Morgunblaðsskeifu, sem hefur verið við lýði í meira en hálfa öld. Fleiri atriði eru á dagskrá og eru allir velkomnir á sýninguna.

Í TopReiter höllinni á Akureyri verður haldin sýningin Fákar og fjör og hefst hún klukkan 18.00 á laugardaginn. Þar mætast æskan og ellin, en hin fimm ára Auður Karen mætir þar á stóðhestinum Friðriki X frá Vestri-Leirárgörðum og hinn 82 ára Ingimar Sveinsson verður henni til fulltingis á hinum 26 vetra Pílatusi. Margir aðrir frægir knapar og hestar taka þátt í sýningunni.

Vestlendingar halda stóra sýningu í kvöld klukkan 20.00 í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi. Þar eru fjölbreytt atriði á dagskrá. Börn og unglingar sýna listar sýnar og snjallir gæðingar og kynbótahross munu gleðja augað. Nokkur ræktunarbú á Vesturlandi kynna ræktun sína. Þá verða kynntir nokkrir stóðhestar sem verða á meðal þeirra sem Hrossvest býður upp á í sumar.

Líflandsmótið 2011 fer fram í Reiðhöllinni í Víðidal á laugardaginn og hefst klukkan 08.00 árdegis. Mótið er keppni barna, unglinga og ungmenna í helstu greinum hestaíþrótta, en einnig er keppt í „pollagreinum“.

Hrossaræktarfélag Hrunamanna heldur árlega Ræktunarveislu í reiðhöllinni á Flúðum. Þar munu nokkur ræktunarbú kynna ræktun sína og stóðhestar verða kynntir, þar á meða Sveinn-Hervar frá Þúfu, sem verður í girðingu félagsins í sumar.

Að lokum er það svo sjálft Kvennatölt Gusts, sem verður haldið í reiðhöll Gusts í Glaðheimum. Þar munu að venju etja kappi margar helstu valkyrjur landsins í hestaíþróttum, bæði atvinnu- og áhugakonur. Nánari upplýsingar um Kvennatöltið má sjá á www.gustarar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link