Fimmgangur á fimmtudag

  • 4. mars 2011
  • Fréttir
Fimmgangur á fimmtudag

Tæp vika er í fjórða mót Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Mótið fer fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, næstkomandi fimmtudag kl. 19.30.
Fimmgangur er ein af þeim greinum sem keppt hefur verið í frá upphafi deildarinnar og hér að neðan má sá þá knapa sem hafa sigrað deildina áður.

2001 Sigurður Sæmundsson Esjar frá Holtsmúla
2002 Sigurbjörn Bárðarson Bylur frá Skáney
2006 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Þokki frá Kýrholti
2007 Hulda Gústafsdóttir Galdur frá Flagbjarnarholti
2008 Hulda Gústafsdóttir Galdur frá Flagbjarnarholti
2009 Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga
2010 Sigurbjörn Bárðarson Stakkur frá Halldórsstöðum

Gera má ráð fyrir hörkuspennandi keppni í Ölfushöllinni á fimmtudaginn kemur. Forsala aðgöngumiða hefst á mánudaginn í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og þorvaldi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link