FT auglýsir eftir reiðkennurum
Félag tamningamanna auglýsir eftir reiðkennurum úr félaginu. Um er að ræða að koma fram á sýniklennslu kvöldi sem félag tamningamanna heldur á Icelandic Horse Expo í apríl. Þetta er mikið tækifæri fyrir reiðkennara til þess að auglýsa sig þar sem reiknað er með töluverðum fjölda gesta erlendis frá.
Hæfniskröfur eru:
Reiðkennarapróf FT
Reynsla af sýnikennslum
Góð enskukunnátta
Frambærilegur hestur
Skráningu lýkur Þriðjudaginn 11 febrúar skráning í mail: [email protected]
Frekari upplýsingar í síma 866-3508
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH