Glódís Rún íþróttamaður Ölfuss 2023
Glódís Rún var valinn íþróttamaður sveitarfélagsins Ölfuss. Hún átti góðu gengi að fagna á síðasta keppnisári og varð m.a heimsmeistari ungmenna í fimmgangi á Sölku frá Efri-Brú.
Kjörinu var lýst við athöfn á vegum íþrótta og tómstundanefndar Ölfuss í Versölum
Eftirtaldir íþróttamenn voru tilnefndir í stafrófsröð:
- Atli Rafn Guðbjartsson fyrir góðan árangur í knattspyrnu
- Emma Hrönn Hákonardóttir fyrir góðan árangur í körfuknattleik
- Freyja Ósk Ásgeirsdóttir fyrir góðan árangur í golfi
- Glódís Rún Sigurðardóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum
- Guðbjartur Ægir Ágústsson fyrir góðan árangur í motocrossi
- Styrmir Snær Þrastarsson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
- Tómas Valur Þrastarson fyrir góðan árangur í körfuknattleik
- Unnur Rós Ármannsdóttir fyrir góðan árangur í hestaíþróttum