Landbúnaðarháskóli Íslands Kannar útivist hrossa á húsi

  • 15. febrúar 2024
  • Fréttir
Partur af BS verkefni í Búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands

Hanna Valdís Kristinsdóttir vinnur nú að BS verkefni sínu í Búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar rannsakar hún útivist hrossa sem eru á húsi en markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um venjur hestaeigenda með útivist hrossanna sinna.

,,Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um venjur hestaeigenda með útivist hrossanna sinna og fá upplýsingar um aðbúnað og hegðun hrossa með það markmið að fá innsýn í velferð þeirra. Lítið er til um rannsóknir tengd þessu og hefur enginn áður verið að skoða útivist í ljósi velferðar.

Það væri best að fá einungis eitt svar frá hverju hesthúsi fyrir sig. Það tekur stuttan tíma að svara könnuninni og væri vel þegið að sem flestir taki þátt,“ segir í verkefnislýsingunni frá henni.

Biðlar hún til hestamanna að svara fyrir sig smá könnun með því að smella HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link