FEIF Youth Cup verður í Sviss
FEIF Youth Cup verður haldið í Sviss dagana 13. til 20. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Þetta er einnig frábært tækifæri til kynnast ungum og efnilegum knöpum frá öðrum löndum.
Ísland á 7 sæti og er umsóknarfrestur til 1. apríl. Umsóknir skulu sendar á [email protected]. Í umsókninni þarf að koma fram nafn, heimilisfang, símanúmer, aldur, hestamannafélag og keppnisreynsla knapa sem og nafn, símanúmer og netfang forráðamanna. Þá þurfa að koma fram upplýsingar um enskukunnáttu umsækjenda auk þess sem þeir eru beðnir um að segja svolítið frá sér og af hverju þeir hafa áhuga á þátttöku í Youth Cup. Íslenskir keppendur hafa þess kost að fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur, en séu keppendur með aðgang að hesti erlendis sem þeir vilja frekar notast við þarf það að fylgja umsókninni.
Íslenska hópnum mun fylgja fararstjóri úr Æskulýðsnefnd LH.
Samkvæmt Landssambandinu er þátttökukostnaður 1065€ inn í því er gisting, fæði, kennsla, hesthúsapláss og skráningargjöld. Þess utan þarf að greiða fyrir flugið og aðrar samgöngur til og frá mótsstað.
Frekari upplýsingar má nálgast í meðfylgjandi skjali (smellið á hlekk til að opna)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson