Folaldasýning Sörla
„Opna folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði laugardaginn 28. febrúar 2015 kl. 13:00.
Keppt verður í flokki mer- og hestfolalda. Tvö folöld verða sýnd í hverju holli.
Ókeypis aðgangur fyrir áhorfendur
Verðlaun verða veitt fyrir folald sýningar að mati dómara, folald sýningar að mati áhorfenda og efstu folöld í hvorum flokki fyrir sig.
Uppboð á folatollum verður í hléi undir topp stóðhesta m.a. Aðall frá Nýjabæ og Hágang frá Narfastöðum.
Skráningargjald er 2.000 kr fyrir hvert folald.
Nánari upplýsingar veittar síðar.
f.h. Kynbótanefnd Sörla,
Vilhjálmur k. Haraldsson.“
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild