Keppni í Samskipadeildinni að hefjast
Lið Stjörnublikks sigraði í liðakeppni deildarinnar á síðasta ári.
Samskipadeildin sem einnig er þekkt undir nafninu Áhugamannadeildin, hefur göngu sína annað kvöld, fimmtudaginn 22. febrúar.
Það er sama snið á deildinni og í fyrra, öll lið hafa möguleika á að tefla fram öllum 5 knöpum liðsins í öllum greinum, en áfram verður það þannig að árangur efstu þriggja knapa hvers liðs telja til stiga. 13 lið eru skráð í deildina í vetur þar af 4 ný lið sem hafa skráð sig til leiks.
Fyrsta mótið er keppni í fjórgangi og alls eru það 62 pör sem eru þátttakendur í fjórgangi ráslista má nálgast á heimasíðu Spretts með því að smella hér. Þar má einnig finna liðakynningu fyrir deildina.
Nóg verður um að vera í Samskipahöllinni í Spretti því að á föstudagskvöldið hefst keppni í nýrri deild, 1.deildinni í hestaíþróttum. Það ætti því að vera nægt tilefni til þess að heimsækja félagssvæði Spretts í Kópavogi þar sem alltaf er nóg um að vera.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH