Fyrsta mót 1. deildarinnar á föstudaginn
Mynd: Alendis.is
Fyrsta mót 1.deildarinnar í hestaíþróttum verður n.k. föstudag, 23. febrúar. Margir öflugir knapar og hestar munu spreyta sig í Samskipahöllinni.
Veitingasalan opnar í veislusalnum kl. 17:00 en keppni hefst kl 19:00. Á boðstólum verður lambalæri með rótargænmeti, brúnni sósu og kartöflugratíni. Stjórn 1. deildarinnar hvetur hestafólk til þess að fjölmenna í stúkuna og fylgjast með þessari nýju deild.
Ráslistar verða kynntir í þætti á Alendis.is í kvöld, miðvikudaginn 21.febrúar, í opinni dagskrá kl 20:00.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH