1. deildin í hestaíþróttum Ráslisti klár fyrir fjórganginn í 1. deildinni

  • 22. febrúar 2024
  • Fréttir
Fyrsta mót 1. deildarinnar í hestaíþróttum er á föstudaginn

Á föstudaginn er fyrsta mót 1. deildarinnar í hestaíþróttum en þetta er fyrsta sinn sem keppt verður í þessari deild.

Ráslisti fyrir kvöldið er klár en hann er hægt að sjá hér fyrir neðan. Fyrstur í brautina er Snorri Dal á Gimsteini frá Víðinesi 1 en Snorri Dal keppir fyrir lið Sportfáka í 1. deildinni.

Veitingasalan opnar í veislusalnum kl. 17:00 en keppni hefst kl 19:00. Á boðstólum verður lambalæri með rótargænmeti, brúnni sósu og kartöflugratíni. Stjórn 1. deildarinnar hvetur hestafólk til þess að fjölmenna í stúkuna og fylgjast með þessari nýju deild.

Ráslisti fyrir fjórgang V1 í 1. deildinni.

Fjórgangur V1 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir
1 Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 Óskasteinn frá Íbishóli Snerra frá Víðinesi 2
2 Anna S. Valdemarsdóttir Erró frá Höfðaborg Kvistur frá Skagaströnd Högna frá Dvergsstöðum
3 Þorvarður Friðbjörnsson Þorinn frá Syðra-Holti Hróður frá Refsstöðum Sonja frá Syðra-Holti
4 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum Hreyfill frá Vorsabæ II Flauta frá Hala
5 Kári Steinsson Björk frá Vestra-Fíflholti Hrafnagaldur frá Hákoti Varða frá Vestra-Fíflholti
6 Rakel Sigurhansdóttir Heiða frá Skúmsstöðum Þrumufleygur frá Álfhólum Löpp frá Skúmsstöðum
7 Siguroddur Pétursson Sól frá Söðulsholti Aron frá Strandarhöfði Blæja frá Svignaskarði
8 Hermann Arason Hólmi frá Kaldbak Vákur frá Vatnsenda Von frá Kaldbak
9 Hákon Dan Ólafsson Úlfur frá Hrafnagili Auður frá Lundum II Rauðhetta frá Holti 2
10 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Orri frá Þúfu í Landeyjum Ósk frá Ey I
11 Tinna Rut Jónsdóttir Forysta frá Laxárholti 2 Hreyfill frá Vorsabæ II Hemla frá Strönd I
12 Elvar Logi Friðriksson Ísar frá Skáney Sólon frá Skáney Hríma frá Skáney
13 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Álfur frá Selfossi Lukka frá Stóra-Vatnsskarði
14 Friðdóra Friðriksdóttir Bylur frá Kirkjubæ Fáni frá Kirkjubæ Lilja frá Kirkjubæ
15 Arnhildur Helgadóttir Svala frá Hjarðartúni Hrókur frá Hjarðartúni Dögun frá Hjarðartúni
16 Vigdís Matthíasdóttir Hjari frá Hofi á Höfðaströnd Sólon frá Skáney Glóð frá Grund II
17 Gunnhildur Sveinbjarnardó Elva frá Auðsholtshjáleigu Krákur frá Blesastöðum 1A Frægð frá Auðsholtshjáleigu
18 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Postuli frá Geitagerði Lord frá Vatnsleysu Folda frá Ólafsvík
19 Haukur Tryggvason Hríma frá Kerhóli Kjarkur frá Skriðu Ösp frá Ytri-Bægisá I
20 Birna Olivia Ödqvist Ósk frá Stað Skýr frá Skálakoti Ófelía frá Holtsmúla 1
21 Haukur Bjarnason Þytur frá Skáney Gustur frá Hóli Þóra frá Skáney
22 Anna Björk Ólafsdóttir Logi frá Lundum II Auður frá Lundum II Hulda frá Lundum II
23 Sigurður Halldórsson Radíus frá Hofsstöðum Hringur frá Gunnarsstöðum I Törn frá Tungu
24 Eyjólfur Þorsteinsson Rjúpa frá Þjórsárbakka Framherji frá Flagbjarnarholti Svala frá Þjórsárbakka

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar