Lífið hjá hestamannafélögum
Heiðranir á haustfundum, sameiningartillaga á aðafundi og folaldasýningar bera hæst á góma á hjá hestamannafélögunum og hrossaræktarsamtökum í vikunni:
- Það var hátíðarstemning um helgina í Austur-Húnavatnssýslu þegar búgreinasambönd og hestamannafélagið Neisti hélt uppskeruhátíð sína.
- Aðalfundur hestamannafélagsins Mána verður haldið í kvöld þriðjudagskvöld kl. 20 í félagsheimili Mána að Mánagrund.
- Aðalfundur Léttis verður haldin í Top Reiter höllinni á morgun miðvikudaginn 23. nóvember kl. 20:00
- Árlegur haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga verður haldinn í Ljósvetningabúð fimmtudaginn 24. nóvember og hefst hann kl. 20:30. Að þessu sinni verða tvö áhugaverð erindi á dagskrá: Mette Mannseth fjallar um tamningu og þjálfun ungra hrossa og Guðlaugur Antonsson fer yfir árið í hrossaræktinni. Á fundinum verður tilkynnt um val á ræktunarbúi ársins á félagssvæðinu. 6 bú eru tilnefnd að þessu sinni. Þau eru í stafrófsröð: Grund II, Komma, Litla-Brekka, Torfunes, Ytra-Dalsgerði og Ytri-Bægisá I.
- Hrossaræktarsamband Skagfirðinga stendur fyrir folaldasýningu sunnudaginn 27. nóvember kl. 13.30 í Svaðastaðahöllinni. Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected].
- Haustfundur Hrossaræktarsambands Vesturlands verður haldinn sunnudaginn 27. nóvember n.k. kl. 14.00 í Hótel Borgarnesi eins og segir hér.
- Boðað er til aðalfundar Skugga þriðjudaginn 29. nóvember, í Félagsheimili Skugga kl. 20. Þar verður t.a.m. lögð fram tillaga um sameiningu hestamannafélaganna Skugga og Faxa.
- Árlegt aðventukvöld kvennadeildar Gusts verður haldið fimmtudaginn 8. desember kl. 19:30 í reiðhöll Gusts í Glaðheimum. Dagskráin hefst kl. 20:00 en gestir kvöldsins eru Felix Bergsson, Lay Low og Hallgrímur Helgason. Einnig verður happdrætti, Hanverk og hönnun og léttar veitingar. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Konur eru hvattar til að taka daginn frá.
- Hestamannafélagið Glæsir á Siglufirði ætlar að halda tamningarnámskeið eftir áramót ef næg þáttaka fæst. „Sennilega verður kennari frá Hólum eða 3 árs nemi. Þeir sem hafa áhuga endilega hafið samband svo sjáist hvort áhugi sé fyrir þessu námskeiði. Nánari uppl og skráning, Simmi í síma s. 8664674,“ segir á vefsíðu félagsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH