„Við erum ótrúlega ánægð með útkomuna“
Fyrsta keppniskvöldið í 1. deildinni í hestaíþróttum fór fram í gærkvöldi. Keppt var í fjórgangi og var keppnin spennandi allt til loka. Heildarniðurstöður kvöldsins má nálgast með því að smella hér. Það fór svo að lokum að Vilborg Smáradóttir stóð uppi sem sigurvegari á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði.
Eiðfaxi var að sjálfsögðu á staðnum og tók Garðar Hólm Birgisson formann 1. deildarinnar tali. Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH