Upprifjunarnámskeið HÍDÍ næstu helgi
Síðara upprifjunarnámskeið HÍDÍ verður haldið 19. mars n.k. í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki kl. 10-16.
„Námskeiðsgjald er 12.000 kr. og þarf að greiða það með reiðufé á staðnum. Dómarar þurfa að mæta með reglur, leiðarann og skriffæri, önnur námskeiðsgögn verða afhent á staðnum. Senda skal tilkynningu um þátttöku á netfangið [email protected] í síðasta lagi föstudaginn 18. mars. Við viljum einnig minna á að í ár verður ekki haldið aukanámskeið,“ segir í tilkynningu frá HÍDÍ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH