Sara og Díva sigruðu í annað sinn
Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum gerðu sér lítið fyrir og unnu annað sinn í röð í Meistaradeildinni þegar þær mörðu fram sigur í í firnasterkri slaktaumatöltskeppninni. Annar var Jakob Svavar Sigurðsson og þriðja Hulda Gústafsdóttir.
Slaktaumatöltsskjöldinn hlaut lið Ganghesta/Málningar en skjöldin hlýtur það lið sem er með hæstu stig úr forkeppni.
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum 8,54
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Alur frá Lundum 8,29
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 8,00
- John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Tónn frá Melkoti 7,67
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 7,38
- Valdimar Bergstað Ganghestar / Málning Týr frá Litla-Dal 7,13
Með sigrinum skaust Sara upp í efsta sæti Meistaradeildina og er með 34 stig, Jakob er annar með 33 og Artemisia Bertus þriðja með 30 stig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH