Góð þátttaka á folaldasýningu Hrossaræktarfélags Flóahrepps

Sunnudaginn 3. mars síðastliðin var haldin hin árlega folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps. Á heimasíðu félagsins er að finna frétt um folaldasýninguna. Samkvæmt henni var góð mæting áhorfenda í Sleipnishöllina og mjög góð skráning folalda á sýninguna. Alls komu félagsmenn með 40 folöld til að sýna, 20 hestfolöld og 20 merfolöld. Myndirnar sem fylgja fréttinni tók Páll Imsland.

Sverrir Ágústsson þulur, Ævar Örn dómari og Gunnar Karl Ársælsson stjórnarmaður í HRFF og aðstoðarmaður dómara
Merfolöld
Í hryssuflokki komu fram eins og áður sagði 20 framtíðargæðingar. Hér má sjá niðurstöður forkeppninnar.
Folöldin eru dæmd á skalanum 1-5 fyrir fjóra þætti sem eru yfirlína, samræmi, hreyfing og fjölhæfni.

Sigurvegarar í hryssuflokki: Ingibjörg Einarsdóttir (Skuggadís frá Langsstöðum), Ólafur Jósepsson (Harpa frá Seljatungu), Jón Gunnþór Þorsteinsson (Perla frá Syðra-Velli), Ólöf Ósk Magnúsdóttir (Völva frá Hrygg 2 – Vinsælasta folaldið að mati áhorfenda) og Atli Geir Jónsson formaður HRFF
Sex efstu hryssurnar komu síðan aftur til úrslita þar sem frekari samanburður fæst og getur því endanleg röðun breyst frá forkeppni.
Í sjötta sætinu eftir úrslit varð Elding frá Brúnastöðum 2, rauðblesótt að lit. Faðir hennar er Lér frá Stóra-Hofi og móðir er Freydís frá Brúnastöðum. Elding ræktuð af og í eigu Ketils Ágústssonar.
Í fimmta sæti varð Erla frá Syðra-Velli, brún að lit. Faðir hennar er Herkúles frá Kolsholti 2 og móðir er Mósa frá Syðra-Velli. Erla er ræktuð af og í eigu Jóns Gunnþórs Þorsteinssonar.
Í fjórða sætinu varð Farsæl frá Læk, móbrún að lit. Faðir hennar er Vísir frá Ytra-Hóli og móðirin er Frægð frá Brúnastöðum. Farsæl er ræktuð af og í eigu Ágústs Guðjónssonar.
Í þriðja sæti varð síðan Perla frá Syðra-Velli, móbrún að lit. Faðir hennar er Spuni frá Vesturkoti og móðir Spöng frá Syðra-Velli. Perla er ræktuð af og í eigu Jóns Gunnþórs Þorsteinssonar.
Í öðru sæti varð Harpa frá Seljatungu, rauð að lit. Faðir hennar er Sindri frá Hjarðartúni og móðir er Fiðla frá Seljatungu. Harpa er ræktuð af og í eigu Ólafs Jósepssonar.
Í fyrsta sæti varð loks Skuggadís frá Langsstöðum, brún að lit. Faðir hennar er Skugga-Sveinn frá Austurhlíð 2 og móðir Nótt frá Langsstöðum. Skuggadís er ræktuð af og í eigu Ingibjargar Einarsdóttur og Hjálmars Ágústssonar.
Hestfolöld
Í hestaflokki voru einnig sýndir 20 framtíðargæðingar. Hér má sjá niðurstöður forkeppninnar.

Það var eins og hjá hryssunum að sex efstu hestarnir komu síðan aftur til úrslita þar sem frekari samanburður fæst og getur því endanleg röðun breyst frá forkeppni.
Í sjötta sætinu eftir úrslit varð Kraftur frá Langsstöðum, leirljós að lit. Faðir hans er Pensill frá Hvolsvelli og móðir er Orka frá Bár. Kraftur er ræktaður af og í eigu Hjálmars Vilhelms Rúnarssonar.
Í fimmta sæti varð Brúni frá Selfossi, brúnn að lit. Faðir hans er Vísir frá Ytra-Hóli og móðir er Harða frá Selfossi. Brúni er ræktaður af og í eigu Sverris Ágústssonar.
Í fjórða sætinu varð Kaldalón frá Austurási, rauðtvístjörnóttur að lit. Faðir hans er Glampi frá Skeiðháholti og móðir er Krafla frá Austurási. Kaldalón er ræktaður af og í eigu Hauks Baldvinssonar og Ragnhildar Loftsdóttur.
Í þriðja sæti varð síðan Bjartur frá Selfossi, rauðblesóttur að lit. Faðir hans er Blesi frá Heysholti og móðir Dropadís frá Miðey. Bjartur er ræktaður af og í eigu Jóhönnu Haraldsdóttur og Sigurðar Rúnars Andréssonar.
Í öðru sæti varð Mímir frá Miðholti, rauðblesóttur leistóttur að lit. Faðir hans er Magni frá Stuðlum og móðir er Urður frá Kirkjubæ. Mímir er ræktaður af og í eigu Jóni Sigursteini Gunnarssyni.
Í fyrsta sæti varð loks Tindur frá Miðholti, brúnn að lit. Faðir hans er Blakkur frá Þykkvabæ og móðir Mökk frá Selfossi. Tindur er ræktaður af og í eigu Gunnars Inga Jónssonar og Jóns Sigursteins Gunnarssonar.
Sigurvegarar í hestaflokki: Atli Geir formaður HRFF, Gunnar Ingi Jónsson, Stella Rún Gunnarsdóttir (Tindur frá Miðholti), Jón S. Gunnarsson, Kolbrún Edda Bjarnadóttir (Mímir frá Miðholti) og Jóhanna Haraldsdóttir (Bjartur frá Selfossi)