Ljósmyndakeppni Eiðfaxa 2011-
Eiðfaxi minnir á að hægt er að senda myndir inn í ljósmyndasamkeppnina til 23. nóvember nk.
Fjölmargir hafa sýnt keppninni áhuga og hafa hátt í 100 myndir borist okkur. Keppnin er ætluð áhugaljósmyndurum og eru vegleg verðlaun í boði fyrir bestu myndirnar. Verðlaunamyndir verða birtar í jólablaði Eiðfaxa.
Æskilegt er að myndirnar séu amk. 2 mb. að stærð og skulu sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH