Fimmgangur á fimmtudag
„Á fimmtudaginn 28 febrúar kl. 19:00 fer fram þriðja mótið í mótaröð Meistaradeildar í hestaíþróttum, í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, en þá verður keppt í fimmgangi. Forsala aðgöngumiða er hafin og er um að gera að tryggja sér miða í tíma. Miðasala fer einnig fram að venju í Ölfushöllinni á keppnisdegi.
Í fyrra sigraði John Kristinn Sigurjónsson, Hrímni/Export hestar, fimmganginn á Konsert frá Korpu, eftir æsispennandi keppni þar sem þeir komu upp sem sigurvegarar úr B-úrslitum og riðu sig upp í fyrsta sætið í A-úrslitum. Í öðru sæti í fyrra varð liðsfélagi John Kristins, Viðar Ingólfsson, á Má frá feti og jöfn í þriðja sæti urðu svo Artemisia Bertus, Hrímni/Export hestar, á Sólbjarti frá Flekkudal og Elvar Þormarsson, Spónn/Netvistun, á Skugga frá Strandarhjáleigu.
Það verður spennandi að sjá hvaða hestar mæta í Ölfushöllina næstkomandi fimmtudag og ljóst nú þegar að keppnin verður bæði spennandi og hörð.
Staðan í stigakeppni einstaklinga eftir fyrstu tvö mótin er jöfn og spennandi. Guðmundur Björgvinsson og Sigurður Sigurðarsson eru hnífjafnir í 1-2 sæti með 20 stig hvor. Eyjólfur Þorsteinssong og Olil Amble eru einnig hnífjöfn í 3-4 sæti með 12 stig.
Staðan í stigakeppni liðanna er ekki síður spennandi en þar leiðir lið Lýsis með 113 stig, Top Reitir/Ármót liðið er með 105,5 stig, Hestvit/Árbakki með 86 stig og Gangmyllan með 79,5 stig. Hægt er að skoða stöðuna nánar í stigakeppninni inná vef Meistaradeildarinnar, www.meistaradeild.is, undir „staðan“. Hvetjum alla til að mæta í Ölfushöllina, upplifa stemminguna og sjá úrval af bestu hestum og knöpum landsins reyna fyrir sér í fimmganginum,“ segir í tilkynningu frá meistaradeild
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH