Mette vann fjórganginn í KS deildinni
Mette og Hannibal, sigurvegarar fjórgangsins. Mynd: Freydís Bergsdóttir
Þá er keppni í fjórgangi lokið í Meistaradeild KS 2024. Það er óhætt að segja að keppnin hafi verið virkilega skemmtileg. Frítt var inn í höllina en Hof á Höfðaströnd bauð gestum í stúkuna.
Mette Mannseth og Hannibal frá Þúfum stóðu uppi sem sigurvegarar í fjórgangi með einkunnina 8.13. Í öðru sæti var Bjarni Jónasson á Hörpu Sjöfn frá Hvolsvelli með einkunnina 7.67 og í þriðja sæti var Þórdís Inga Pálsdóttir á Draupni frá Dimmuborg með 7.30.
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Þúfna með 63 stig en liðið var með alla knapa í úrslitum. Lið Þúfna er efst í liðakeppninni eftir tvær greinar með 131 stig. Í öðru sæti er Hrímnir/Hestklettur með 112,5 stig og þriðja er liða Storm Rider með 89,5 stig.
Mette Mannseth er efst í einstaklingskeppninni en hún endaði í öðru sæti í gæðingalistinni og var efst nú í kvöld.
Næst verður keppt í fimmgangi þann 22. mars en hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins.
A úrslit
1. Mette Mannseth og Hannibal frá Þúfum / Þúfur 8,13
2. Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli / Storm Rider 7,67
3. Þórdís Inga Pálsdóttir og Draupnir frá Dimmuborg / Hrímnir – Hestklettur 7,30
4. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum / Uppsteypa 7,27
5. Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ / Hrímnir – Hestklettur 7,17
B-úrslit
6. Freyja Amble Gísladóttir og Álfatrú frá Syðri-Gegnishólum / Íbishóll 7,13
7. Barbara Wenzl og Spenna frá Bæ / Þúfur 6,97
8. Klara Sveinbjörnsdóttir og Druna frá Hólum / Stormhestar 6,87
9. Lea Christine Busch og Kaktus frá Þúfum / Þúfur 6,80
10. Þórarinn Eymundsson og Náttfari frá Varmalæk / Hrímnir – Hestklettur 6,77
Forkeppni
1. Mette Mannseth og Hannibal frá Þúfum / Þúfur 7,83
2. Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli / Storm Rider 7,40
3. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum / Uppsteypa 7,00
4. Þórdís Inga Pálsdóttir og Draupnir frá Dimmuborg / Hrímnir – Hestklettur 6,97
4. Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ / Hrímnir – Hestklettur 6,97
6. Freyja Amble Gísladóttir og Álfatrú frá Syðri-Gegnishólum / Íbishóll 6,93
7. Lea Christine Busch og Kaktus frá Þúfum / Þúfur 6,90
8. Barbara Wenzl og Spenna frá Bæ / Þúfur 6,83
9. Klara Sveinbjörnsdóttir og Druna frá Hólum / Stormhestar 6,80
9. Þórarinn Eymundsson og Náttfari frá Varmalæk / Hrímnir – Hestklettur 6,80
11. Guðmar Freyr Magnússon og Radíus frá Hofsstöðum / Íbishóll 6,77
12. Elvar Einarsson og Muni frá Syðra-Skörðugili / Storm Rider 6,70
13-14. Erlingur Ingvarsson og Díana frá Akureyri / Storm Rider 6,60
13-14. Kristján Árni Birgisson og Rökkvi frá Hólaborg / Staðarhof 6,60
15. Þorvaldur Logi Einarsson og Hágangur frá Miðfelli 2 / Staðarhof 6,57
16. Magnús Bragi Magnússon og Leistur frá Íbishóli / Íbishóll 6,50
17-18. Finnbogi Bjarnason og Taktur frá Dalsmynni / Storm Rider 6,47
17-18. Thelma Dögg Tómasdóttir og Kinnungur frá Torfunesi / Uppsteypa 6,47
19-20. Ingunn Ingólfsdóttir og Ugla frá Hólum / Stormhestar 6,43
19-20. Vignir Sigurðsson og Gjöf frá Syðra-Brekkukoti / Uppsteypa 6,43
21. Katla Sif Snorradóttir og Sæmar frá Stafholti / Dýraspítalinn Lögmannshlíð 6,40
22. Fanney O. Gunnarsdóttir og Katla frá Brimilsvöllum / Staðarhof 6,37
23. Agnar Þór Magnússon og Bassi frá Grund II / Dýraspítalinn Lögmannshlíð 6,07
24. Höskuldur Jónsson og Kátína frá Sámsstöðum / Dýraspítalinn Lögmannshlíð 5,90
Staðan í liðakeppninni eftir tvær greinar:
1. Þúfur 131 stig
2. Hrímnir/Hestklettur 112,5 stig
3. Storm Rider 89,5 stig
4. Íbishóll 86 stig
5. Uppsteypa 73 stig
6. Stormhestar 62 stig
7. Staðarhof 49 stig
8. Dýraspítalinn Lögmannshlíð 17 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH