Uppsveitadeildin Ráslisti fyrir fimmganginn í Uppsveitadeildinni

  • 7. mars 2024
  • Fréttir
Keppt verður í fimmgangi á öðru móti Uppsveitadeildarinnar

Á föstudaginn er annað mót Uppsveitadeildarinnar. Þá verður keppt í fimmgangi og hefst keppni kl. 19:00.

Húsið opnar kl. 18:00 og er frítt inn.

Fyrstur í braut er Hannes Brynjar Sigurgeirsson á Sigurpáli frá Varmalandi. Benjamín Sandur Ingólfsson mætir með Stardal frá Stíghúsi en hann vann fjórganginn og er efstur í einstaklingskeppninni.

Sigurvegararnir frá því í fyrra Þorgeir Ólafsson og Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 eru á ráslistanum svo þetta stefnir í hörkukeppni í reiðhöllinni á Flúðum á föstudagskvöld.

Hér fyrir neðan eru ráslistar kvöldsins

Fimmgangur F1 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur
1 Hannes Brynjar Sigurgeirson Sigurpáll frá Varmalandi Lögmannstofa Ólafs Björnssonar
2 Anna Kristín Friðriksdóttir Korka frá Litlu-Brekku Vesturkot/Hofadynur/Dýralæknirinn Flúðum
3 Benjamín Sandur Ingólfsson Stardal frá Stíghúsi Sumarliðabær
4 Janneke M. Maria L. Beelenkamp Hervar frá Arabæ Nautás
5 Ingunn Birna Ingólfsdóttir Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 LogoFlex
6 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Glitra frá Sveinsstöðum Draupnir
7 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir Sproti frá Litla-Hofi Lögmannstofa Ólafs Björnssonar
8 Þórarinn Ragnarsson Herkúles frá Vesturkoti Vesturkot/Hofadynur/Dýralæknirinn Flúðum
9 Þorgils Kári Sigurðsson Nasi frá Syðra-Velli Sumarliðabær
10 Þorbjörn Hreinn Matthíasson Stúdent frá Ásmúla
Nautás
11 Guðný Dís Jónsdóttir Pipar frá Ketilsstöðum LogoFlex
12 Katrín Ósk Kristjánsdóttir Hrappur frá Breiðholti í Flóa Draupnir
13 Finnur Jóhannesson Vígar frá Laugabóli Lögmannstofa Ólafs Björnssonar
14 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Skúmur frá Skör Vesturkot/Hofadynur/Dýralæknirinn Flúðum
15 Þorgeir Ólafsson Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 Sumarliðabær
16 Þór Jónsteinsson Þoka frá Kerhóli
Nautás
17 Guðrún Margrét Valsteinsdóttir Óskar Þór frá Hvítárholti LogoFlex
18 Bryndís Arnarsdóttir Teitur frá Efri-Þverá
Draupnir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar