Fákar og fjör 14. apríl
Hestamannafélagið Léttir heldur stórsýninguna Fáka og fjör þann 14. apríl n.k. í reiðhöllinni á Akureyri.
„Fjölbreytt dagskrá verður í boði með keppnis- og kynbótahrossum, skemmtiatriðum, hrossaræktarbú sækja sýninguna heim, tilþrifaskeið o.fl. Við fáum stórstjörnur í heimsókn, bæði knapa og hesta og segjum við nánar frá því þegar nær dregur. Það verður því af nógu að taka fyrir alla áhugamenn um hestamennsku á þessari sýningu. Sýniningin hefst kl. 18 og verður henni skipt í þrjá hluta, með tveimur hléum. Þetta fyrirkomulag gafst afar vel á liðnu ári og verður endurtekið nú. Verið velkomin á sýninguna Fákar og fjör 2012 á Akureyri,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH