Tillaga Kristins um tilhögun kynbótasýninga

  • 9. mars 2012
  • Fréttir
Tillaga Kristins um tilhögun kynbótasýninga

Á fundum Guðlaugs Antonssonar og Kristins Guðnasonar sem haldnir hafa verið víða um land undanfarna daga hefur Kristinn kynnt nýja tillögu um tilhögun kynbótasýninga á LM2012. Lárus Hannesson formaður dómarafélagsins hefur verið með þeim félögum og kynnt störf dómara.

Tillagan gengur út á það að dómar verði með hefðbundnu formi 8-10 ferðir á beinni braut og yfirlitssýning með hefðbundnum hætti . Nýjungin felst í því að yfirlitssýningar hefjast í lok  miðvikudags og klárast á fimmtudegi samhliða annarri dagskrá en verður ekki eina dagskráratriðið á fimmtudegi eins og verið hefur á undanförnum Landsmótum. Á föstudegi verður svo boðið upp á kynningu á kynbótahrossum fyrir þau hross sem ekki ná í verðlaunasæti þar sem þau geta sýnt sínar bestu hliðar, en þar verður um að ræða kynningu en ekki dóm. Þetta er hugsað sem vettvangur til að kynna þau hross sem ekki koma til verðlaunaveitingar, en verðlaunaveitingar verða líkt og verið hefur á laugardegi.

Farið verður yfir verkferla kynbótasýninganna og verkstjórn þeirra efld svo minna verði um óþarfa tafir. Ekki hefur verið endanlega ákveðið hvort að þetta verði það form sem notast verður við á LM2012 heldur er þetta tillaga frá Kristni Guðnasyni. Einnig er enn verið að ræða hvort fækka ferðum úr 10 í 9 ferðir í dómnum og úr 6 í 5 á yfirliti.

Þessi tillaga hefur verið kynnt á þeim fundum sem búnir eru og hefur hún mælst mjög vel fyrir hjá fundarmönnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link