Arna Ýr og Þróttur vörðu sinn titil – Uppfærð frétt
Vígalegar töltsveiflur sáust á opna Barkamótinu sem haldið var í reiðhöllinni í Víðidal laugardagskvöldið 19. mars.
Keppt var í þremur flokkum. Í flokki 17 ára og yngri sigraði Arnór Dan Kristinsson á Ásdísi frá Tjarnarlandi eftir jafna og spennandi keppni. Í flokki áhugamanna skaut Rúnar Bragason og Þrá frá Tungu öðrum góðum keppendum ref fyrir rass með glæsilegri sýningu. Þá varði Arna Ýr Guðnadóttir og Þróttur frá Fróni titil sinn í Opnum flokki, en þau sigruðu nokkuð örugglega. Næstir urðu þeir John Sigurjónsson á Íkoni frá Hákoti og Teitur Árnason á Tvistu frá Litla-Moshvoli, en þess má til gamans geta að báðir sátu þeir hross í eigu tengdamæðra sinna.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
A-úrslit
17 ára og yngri
1. Arnór Dan Kristinsson og Ásdís frá Tjarnarlandi – 6,49
2. Rúna Tómasdóttir og Brimill frá Þúfu – 6,48
3. Bára Steinsdóttir og Spyrnir frá Grund II – 6,42
4. Rakel Jónsdóttir og Eirvör frá Hamrahól – 6,37
5. Harpa Sigríður Bjarnadóttir og Trú frá Álfhólum (úr B-úrslitum) – 6,26
6. Hulda Kolbeinsdóttir og Nemi frá Grafarkoti – 6,01
Áhugamannaflokkur
1. Rúnar Bragason og Þrá frá Tungu – 7,08
2. Ellen María Gunnarsdóttir og Lyfting frá Djúpadal – 6,97
3. Halldóra Baldvinsdóttir og Hjálprekur frá Torfastöðum – 6,80
4. Kjartan Guðbrandsson og Svalvör frá Glæsibæ (úr B-úrslitum) – 6,77
5. Sigrún Ásta Haraldsdóttir og Frakki frá Enni -6,73
6. Erla Katrín Jónsdóttir og Sólon frá Stóra-Hofi – 6,67
7. Rósa Valdimarsdóttir og Vaka frá Margrétarhofi – 6,64
Opinn flokkur
1. Arna Ýr Guðnadóttir og Þróttur frá Fróni – 7,83
2. John Sigurjónsson og Íkon frá Hákoti – 7,46
3. Teitur Árnason og Tvista frá Litla-Moshvoli – 7,36
4. Kári Steinsson og María frá Feti (úr B-úrslitum) – 7,23
5. Fanney Guðrún Valsdóttir og Fókus frá Sólheimum – 7,13
6. Birgitta Dröfn Kristinsdóttir og Vera frá Laugarbökkum – 7,08
B-úrslit
17 ára og yngri
6. Harpa Sigríður Bjarnadóttir og Trú frá Álfhólum – 5,98
7. Nína María Hauksdóttir og Ófeigur frá Syðri-Ingveldarstöðum – 5,94
8. Magnús Þór Guðmundsson og Drífandi frá Búðardal – 5,84
9. Andri Ingason og Pendúll frá Sperðli – 5,81
10. Þórunn Þöll Einarsdóttir og Bikar frá Ytra-Skörðugili – 5,46
Áhugamannaflokkur
7. Kjartan Guðbrandsson og Svalvör frá Glæsibæ – 6,43
8. Guðni Hólm Stefánsson og Smiður frá Hólum – 6,40
9. Hulda G. Geirsdóttir og Róði frá Torfastöðum – 6,08
10. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Þokki frá Þjóðólfshaga 1 – 5,98
11. Haraldur Einarsson og Skírnir frá Svalbarðseyri – 5,92
12. Karen Sigfúsdóttir og Ösp frá Húnsstöðum – 5,91
Opinn flokkur
7. Kári Steinsson og María frá Feti – 6,89
8. Ragnar Tómasson og Ari frá Köldukinn – 6,79
9. Jón Viðar Viðarsson og Ari frá Síðu – 6,77
10. Sigurbjörn Viktorsson og Kolbakur frá Hólshúsum – 6,68
11. Sara Ástþórsdóttir og Gjóska frá Álfhólum – 6,51
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá mótinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH