Fjörureiðtúr og töltmót á Snæfellsnesi
Starfsemi hestamannafélagsins Snæfellings í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu er líflegt þessa daganna.
Á laugardaginn, 5 mars, stendur félagið fyrir fjörureiðtúr, ef veður leyfir.
Þeir sem hafa áhuga á að slást í för með Snæfellingum geta mætt kl.12 að Stakkhamri og farið í reiðtúr þaðan og endað aftur þar, en einn hestur dugar fyrir ferðina. Kaffi verður í boði eftir reiðtúrinn. Látið vita um þátttöku í netfangið [email protected] eða í síma 893 1584.
Þá ætlar Snæfellingar að standa fyrir Töltmóti í Söðulsholti föstudagskvöldið 11 mars. kl. 19. Keppt verður í fimm flokkum ef næg þátttaka næst.
Tveir flokkar fyrir keppendur 17 ára og yngri
Byrjendur
Opinn flokkur
Skráningjald er 1000kr á hest
Þrír flokkar fyrir eldri keppendur
2. flokkur, byrjendur
1. flokkur, minna vanir
Opinn flokkur
Skráningjargjald er 2000 kr. á fyrsta hest og 1000 kr. á annan hest
Skráning er í netfangið [email protected] eða í síma 893 1584. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisflokkur, nafn og kennitöla knapa, nafn og IS númer hests
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Snæfellings þegar nær dregur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH