Ragnheiður og Glíma sigruðu örugglega

  • 29. júní 2012
  • Fréttir
Ragnheiður og Glíma sigruðu örugglega

Hart var barist í B-úrslitum ungmennaflokks. Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir á henni Glímu frá Bakkakoti sigraði örugglega úrslitin með einkunnina 8,70. Þær Ragnheiður og Glíma voru efstar eftir bæði forkeppni og milliriðla á Landsmótinu í fyrra en þurftu að láta sér lynda 2. sætið í úrslitum. Ragnheiður mun eflaust ekki gefa neitt eftir í a úrslitum og verður spennandi að fylgjast með þeim Glímu. Til gamans má geta er Ragnheiður Hrund eigandi Glímu en einnig á Ragnheiður tvö alsystkini hennar þau Arion- og Spá frá Eystra-Fróðholti. Arion og Spá sigruðu bæði sína flokka á Landsmótinu hér í Reykjavík en Spá er efst í 6 vetra flokki hryssna (8,67) og Arion efstur í 5 vetra flokki stóðhesta (8,63)

Elsa Hreggviðsdóttir Mandal fékk gult spjald frá einum dómara fyrir að trufla annan þátttakanda en hún reið í veg fyrir Ragnheiði Hrund á Glímu.

9. Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir Glíma frá Bakkakoti 8,66 – 8,68 – 8,72  – 8,76 – 8,68 = 8,70
10. Lilja Ósk Alexandersdóttir Hróður frá Laugabóli 8,42 – 8,60 – 8,58 – 8,62 – 8,66 = 8,58 
11. Arna Ýr Guðnadóttir Þróttur frá Fróni 8,50 – 8,48 – 8,60 – 8,50 – 8,58 = 8,53
12. Hjörvar Ágústsson Gára frá Snjallsteinshöfða 8,18 – 8,30 – 8,46 – 8,40 – 8,30 = 8,33
13. Birgitta Bjarnadóttir Blika frá Hjallanesi 8,24 – 8,24 – 8,36 – 8,30 – 8,36 = 8,30
14. Finnur Ingi Sölvason Fursti frá Stóra-Hofi 8,44 – 7,90 – 8,42 – 8,30 – 8,34 = 8,28
15. Elsa Hreggviðsdóttir Mandal Spegill frá Auðsholtshjáleigu 8,10 – 8,22 – 8,42 – 8,38 – 8,18 = 8,26

 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link