Stórkostlegar sýningar
Titilverjendurnir Jóhann Skúlason og Hnokki frá Fellskoti voru síðastir á völlinn í forkeppni töltsins hér á Heimsbikarmótinu í Óðinsvéum.
Engin keppandi komst með tærnar þar sem þeir félagar hafa hælanna. Þeir uppskáru 8,53 í lokaeinkunn og eru langefstir. Jóhann er einnig í öðru sæti og verður nú að velja hvort hrossið hann teflir fram í úrslitum, heimsmeistara Hnokka eða nýju stjörnuna hana Snugg.
Þriðja eftir forkeppni eru sjarmatröllin Unn Kroghen Aðalsteinssong Hrafndynur frá Hákoti. Uli Reber og Dröfn frá Litla- Moshvoli í því fjórða og síðust inn í A-úrslit er hin unga Johanna Beug á Merkur von Birkenlund.
1. Jóhann Rúnar Skúlasson, Hnokki frá Fellskoti – 8,53
2. Jóhann Rúnar Skúlasson, Snugg fra Grundet Hus – 7,80
3. Unn Kroghen Adalsteinsson, Hrafndynur frá Hákoti 7,73
4. Uli Reber, Dröfn frá LitlaMoshvoli – 7,43
5. Johanna Beuk, Merkur von Birkenlud – 7,23
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH