Opið Gæðingamót á Rangárbökkum
Gæðingmót Geysis sem er opið gæðingamót verður haldið dagana 26.-28. júní á Rangárbökkum við Hellu samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
- A-flokkur opinn
- A-flokkur áhugamanna(í skráningunni F2 annar flokkur).
- B-flokkur opinn
- B-flokkur áhugamanna(í skráningunni V2 annar flokkur).
- C-flokkur (2 hringir, sýna fet, tölt eða brokk, stökk) ætlaður þeim sem eru að hefja sinn keppnisferil í gæðinakeppni.(í skráningunni annað annarflokkur)
- Ungmennaflokkur
- Unglingaflokkur
- Barnaflokkur
- 100m skeið
- Tölt T3 18 ára og eldri
- Tölt T3 17 ára og yngri
Skráningargjald:
- 5000 kr ungmenni og fullorðnir í gæðingakeppni.
- 3000 kr í tölt og skeið.
- frítt fyrir börn og unglinga í gæðingakeppni.
„Skráning er hafin og lýkur þriðjudaginn 23.júní kl 23:59. Skráning fer fram á hmfgeysir.is undir hnappnum skráningarkerfi. Mótanefndin áskilur sér rétt til að sameina eða fella niður flokka sé ekki næg skráning. Ef vandræði koma upp við skráning er hægt að hringja í 8637130 áður en skráningu lýkur,“ segir í tilkynningu frá stjórn Geysis.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH