Fimmgangur í fyrstu deildinni
Arnhildur Helgadóttir leiðir einstaklingskeppnina að loknum þremur keppnisgreinum
Fimmtudaginn 4.apríl verður Fimmgangur í 1.deildinni í boði Líflands í Samskipahöllinni í Spretti. Húsið opnar kl 17.00 með dýrindis veitingum í föstu og fljótandi formi keppni hefst svo stundvíslega kl 19:00.
Þremur keppnisgreinum er nú þegar lokið og staðan í einstaklings- og liðakeppninni er galopin. Arnhildur Helgadóttir er á toppnum með 23 stig, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir í öðru sæti með 20 stig og Birna Olivia Ödkvist í því þriðja með 16 stig.
Í liða keppninni munar einungi 0,5 stigi á liði Heimahaga sem leiðir keppnina og lið Sportfáka sem er í öðru sæti. Skammt undan í þriðja sætinu er svo lið Vindás/Stóðhestavals.
Ráslisti fyrir keppni í fimmgangi er klár og þar má finna margt frábærra knapa og hrossa
| Nr. | Knapi | Lið | Hestur |
| 1 | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | Heimahagi | Esja frá Miðsitju |
| 2 | Sigurður Halldórsson | stjörnublikk | Gustur frá Efri-Þverá |
| 3 | Hermann Arason | Vindás | Ósk frá Vindási |
| 4 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | laxárholt | Muggur Hinn Mikli frá Melabergi |
| 5 | Arnhildur Helgadóttir | Sportfákar | Ölur frá Reykjavöllum |
| 6 | Kári Steinsson | Hringdu | Sigurrós frá Lerkiholti |
| 7 | Haukur Bjarnason | Kidka | Abel frá Skáney |
| 8 | Telma Tómasson | horseday | Forni frá Flagbjarnarholti |
| 9 | Sigríður Pjetursdóttir | laxárholt | Hrund frá Hólaborg |
| 10 | Anna S. Valdemarsdóttir | horseday | Lávarður frá Egilsá |
| 11 | Ríkharður Flemming Jensen | Heimahagi | Myrkvi frá Traðarlandi |
| 12 | Sanne Van Hezel | stjörnublikk | Völundur frá Skálakoti |
| 13 | Reynir Örn Pálmason | hringdu | Fjalar frá Margrétarhofi |
| 14 | Elvar Logi Friðriksson | Kidka | Teningur frá Víðivöllum fremri |
| 15 | Snorri Dal | Sportfákar | Gimsteinn frá Víðinesi 1 |
| 16 | Vilborg Smáradóttir | vindás | Sónata frá Efri-Þverá |
| 17 | Birna Olivia Ödqvist | Vindás | Sirkus frá Torfunesi |
| 18 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Kidka | Greifi frá Söðulsholti |
| 19 | Hákon Dan Ólafsson | Heimahagi | Geisli frá Gafli |
| 20 | Rakel Sigurhansdóttir | láxárholt | Blakkur frá Traðarholti |
| 21 | Anna Björk Ólafsdóttir | Sportfákar | Greifi frá Grímarsstöðum |
| 22 | Katrín Sigurðardóttir | stjörnublikk | Haukur frá Skeiðvöllum |
| 23 | Játvarður Jökull Ingvarsson | Hringdu | Lávarður frá Ekru |
| 24 | Súsanna Sand Ólafsdóttir | horseday | Bergstað frá Þingbrekku |
Fimmgangur í fyrstu deildinni
„Núna er þetta bara upp á við“
Fimmgangnum frestað í Samskipadeildinni