Hestamiðstöð Íshesta 10 ára
Hestamiðstöð Íshesta í Hafnarfirði fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni höldum við fjölskylduhátíð á morgun, Sumardaginn fyrsta, í hestamiðstöðinni að Sörlaskeiði frá kl. 13:00 til 16:00.
Teymt verður undir börnum, hægt að fara í klukkutíma reiðtúr, stóðhestur verður á staðnum, folöld, íslenskir hundar o.fl. Víkingar og brokkkórinn koma í heimsókn.
Dagskrána má finna á www.ishestar.is og á Facebook síðu Íshesta.
Sjáumst í sumarskapi!
Íshestar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH