Arnhildur og Ölur efst í fimmgangnum
Arnhildur og Ölur fra Reykjavöllum. Ljósmynd: Facebooksíða 1.deildar
Arnhildur Helgadóttir heldur áfram að gera það gott í 1.deildinni í Hestaíþróttum. Hún sigraði keppni í fimmgangi á Öl frá Reykjavöllum með 7,00 í einkunn í úrslitum. Í öðru sæti varð liðsfélagi hennar, Snorri Dal, á Gimsteini frá Víðinesi 1 með 6,79 og í því þriðja varð Sanne Van Hezel á Völundi frá Skálakoti með 6,71 í einkunn.
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Sportfáka.

Snorri Dal, Arnhildur Helgadóttir og Anna Björk Ólafsdóttir, liðsmenn Sportfáka. Ljósmynd: Facebooksíða 1.deildar

Arnhildur Helgadóttir
Næsta mót í deildinni er áætlað þann 18.apríl þegar keppt verður í 100 metra skeiði og tölti.
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Arnhildur Helgadóttir | Ölur frá Reykjavöllum | 6,80 |
| 2 | Snorri Dal | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,60 |
| 3-4 | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | Esja frá Miðsitju | 6,57 |
| 3-4 | Sanne Van Hezel | Völundur frá Skálakoti | 6,57 |
| 5 | Birna Olivia Ödqvist | Sirkus frá Torfunesi | 6,50 |
| 6 | Haukur Bjarnason | Abel frá Skáney | 6,33 |
| 7 | Sigurður Halldórsson | Gustur frá Efri-Þverá | 6,27 |
| 8 | Ríkharður Flemming Jensen | Myrkvi frá Traðarlandi | 6,23 |
| 9 | Elvar Logi Friðriksson | Teningur frá Víðivöllum fremri | 6,07 |
| 10-12 | Reynir Örn Pálmason | Fjalar frá Margrétarhofi | 6,03 |
| 10-12 | Hákon Dan Ólafsson | Geisli frá Gafli | 6,03 |
| 10-12 | Hermann Arason | Ósk frá Vindási | 6,03 |
| 13 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Greifi frá Söðulsholti | 5,90 |
| 14-15 | Telma Tómasson | Forni frá Flagbjarnarholti | 5,87 |
| 14-15 | Kári Steinsson | Sigurrós frá Lerkiholti | 5,87 |
| 16 | Katrín Sigurðardóttir | Haukur frá Skeiðvöllum | 5,83 |
| 17-18 | Anna S. Valdemarsdóttir | Lávarður frá Egilsá | 5,77 |
| 17-18 | Játvarður Jökull Ingvarsson | Lávarður frá Ekru | 5,77 |
| 19 | Anna Björk Ólafsdóttir | Greifi frá Grímarsstöðum | 5,70 |
| 20 | Sigríður Pjetursdóttir | Hrund frá Hólaborg | 5,60 |
| 21 | Rakel Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti | 5,23 |
| 22 | Vilborg Smáradóttir | Sónata frá Efri-Þverá | 5,03 |
| 23 | Súsanna Sand Ólafsdóttir | Bergstað frá Þingbrekku | 4,33 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Arnhildur Helgadóttir | Ölur frá Reykjavöllum | 7,00 |
| 2 | Snorri Dal | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,79 |
| 3 | Sanne Van Hezel | Völundur frá Skálakoti | 6,71 |
| 4 | Birna Olivia Ödqvist | Sirkus frá Torfunesi | 6,64 |
| 5 | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | Esja frá Miðsitju | 6,60 |
| 6 | Haukur Bjarnason | Abel frá Skáney | 6,50 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH