Skráning á Svellkaldar konur
„Hið stórvinsæla ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur“ fer fram í Skautahöllinni í Laugardal í Reykjavík laugardaginn 16. mars nk. Mikil stemmning er fyrir mótinu eins og alltaf, aðeins 100 pláss eru í boði á ísnum og hafa þau fyllst á örskotsstundu undanfarin ár. Hver knapi má aðeins skrá eitt hross til þátttöku svo sem flestir komist að.
Skráning hefst klukkan 23:59 þriðjudaginn 5. mars. og mun standa til miðnættis föstudaginn 8. mars. Skráning fer eingöngu fram á vefnum http://temp-motafengur.skyrr.is/. Greiðsla verður að fara fram með greiðslukorti samhliða til að skráning sé staðfest. Skráningargjald er kr. 5.000. Fyrstir skrá – fyrstir fá!
Keppt verður í þremur flokkum að venju og er mótið opið konum 18 ára og eldri (ungmennaflokkur og fullorðinsflokkur).
Keppnisflokkarnir eru:
Minna keppnisvanar – Hægt tölt og fegurðartölt.
Meira keppnisvanar – Hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.
Opinn flokkur – Hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.
Ekkert er snúið við og öll keppnin riðin upp á vinstri hönd. A og B úrslit í öllum flokkum.
Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við flokkaskráningu. Knapi sem sigrað hefur í tilteknum flokki eða komist þrisvar sinnum í A-úrslit í einhverjum flokki, skal færast upp í næsta styrkleikaflokk fyrir ofan.
Til mikils er að vinna á mótinu en sigurvegarar í öllum flokkum munu fá veglega vinninga. Fjöldi aukaverðlauna er einnig í boði og munu allir verðlaunahafar mótsins fara hlaðnir heim.
Dómarar munu velja glæsilegasta parið úr hópi allra keppenda. Sérstaklega er litið til snyrtimennsku, klæðnaðar og hirðingar hests, samspil manns og hests og prúðmannlegrar reiðmennsku.
Konur eru hvattar til að taka daginn frá sem og allir hestamenn, en gaman er að mæta í Skautahöllina og hvetja flotta knapa og hesta til dáða. Allur ágóði af mótinu rennur til íslenska landsliðsins í hestaíþróttum og gefa allir starfsmenn, undirbúningsnefnd og dómarar vinnu sína.
Fjöldi styrktaraðila kemur að mótshaldinu og eru þeim veittar þakkir fyrir.
Fylgist með okkur á Facebook.com, Svellkaldar konur.
Sjáumst í Laugardalnum 16. mars nk,“segir í tilkynningu frá skipuleggjendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH