Fræðslufundur landsliðsnefndar í dag
„Þriðjudaginn 19. febrúar verður haldinn fræðslufundur á vegum landsliðsnefndar LH. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum hestamönnum um neðantalin málefni.
Fundurinn verður haldinn í D-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl. 17:00.
Fyrirlesarar
- Sigríður Björnsdóttir, sérgreinadýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST – sóttvarnir, munnáverkar og álagsmeiðsl
- Sigurður Torfi Sigurðsson – járningar og hófhirða
- Arnar Grant – heilsurækt, þjálfun og mataræði
Áhugasamir eru boðnir hjartanlega velkomnir.
Minnt er á allar upplýsingar tengdar landsliðsverkefni LH er að finna undir „Landslið“ á vef LH, www.lhhestar.is. Bein slóð á HM2013 málefnin er hér: http://www.lhhestar.is/is/landslid/hm-2013. Þar má til að mynda finna nýjar upplýsingar um smitvarnir, ferðareglur LH og ferðareglur ÍSÍ,“ segir í tilkynningu frá Landsliðsnefnd LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH