A-úrslit í tölti á stórmóti Geysis
Það var skemmtileg stemning á Gaddstaðaflötum í kvöld er bestu töltararnir reyndu með sér í A-úrslitum. Kvöldsólin yljaði áhorfendum og lesa mátti úr stemningunni að kvefpest í hrossum var fjarri hugum fólks.
Keppnin var jöfn og skemmtileg, enda var munur á einkunnum efsta hests og þess er hafnaði í sjötta sæti ekki mikið meiri en 0,4.
Úrslit urðu þessi:
| 1 | Sigurður Óli Kristinsson / Svali frá Feti | 7,72 | |||
| 2 | Bylgja Gauksdóttir / Grýta frá Garðabæ | 7,72 | |||
| 3 | Þórdís Gunnarsdóttir / Ösp frá Enni | 7,67 | |||
| 4 | Sara Ástþórsdóttir / Díva frá Álfhólum | 7,56 | |||
| 5 | Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Losti frá Strandarhjáleigu | 7,39 | |||
| 6 | Eyjólfur Þorsteinsson / Ósk frá Þingnesi | 7,33 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH