Funamenn halda reiðnámskeið

  • 4. mars 2011
  • Fréttir
Funamenn halda reiðnámskeið

Fræðslunefnd hestamannafélagsins Funa í Eyjafirði stendur fyrir reiðnámskeiði með Ásdísi Helgu Sigursteinsdóttur reiðkennara.

„Ásdís Helga er menntaður reiðkennari frá Hólaskóla ásamt því að hafa náð góðum árangri bæði sem kynbóta- og keppnisknapi, heimasíða Ásdísar Helgu er http://asdishelga.123.is/home/. Námskeiðið verður haldið helgarnar 18.-20. mars og 9.-10. apríl að Melaskjóli og hefst með nema- og kennarafundi föstudagskvöldið 18. mars í Funaborg kl. 20. Hver kennslustund verður um 45 mín., einn til tveir saman í hverri kennslustund. Námskeiðið er ætlað jafnt börnum sem fullorðnum.“

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hestamannafélagsins Funa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link