Heyverð stendur í stað eða lækkar
Heyverð stendur í stað og ekki ólíklegt að það muni lækka þegar líður á veturinn. Mikið framboð er á heyi hjá bændum eftir nokkur góð heyskaparsumur í röð. Styttri innistaða á reiðhestum í fyrra, sem rekja má til hrossapestarinnar, varð til þess að heysala var með minna móti. Nú lítur út fyrir að hestafólk í þéttbýli sé að spara við sig og taki almennt seinna á hús og færri hross en áður. Tíðin í haust hefur verið einstaklega góð og gjafatíminn í vetur verður þar af leiðandi styttri en í meðalári.
Vilhjálmur Þórarinsson í Litlu-Tungu, sem er stærsti heysali landsins, segir að hann muni halda sama verði og í fyrra. 250 kílóa ferbaggi kostar 7500 krónur með virðisauka komið í hús á höfuðborgarsvæðinu, eða 30 krónur kílóið með flutningi. Vilhjálmur segir að heyin séu þurr eftir gott sumar. Sem þýðir að heymagn í hverjum bagga er með meira móti.
Fleiri smærri aðilar auglýsa hey til sölu. Algengt verð á rúllum í hefðbundinni stærð er 5000 krónur rúllan fyrir utan virðisauka heima á hlaði. Sem þýðir sirka 8000 krónur með virðisauka og flutningi. Hægt er að fá ársgamalt hey fyrir minna og er algengt verð 3500 krónur rúllan fyrir utan virðisauka, — heima á hlaði. Heymagn rúllu í meðalstærð er 280 til 380 kíló. Er þá miðað við allþurrt hey. Kaupin eru að sjálfssögðu betri eftir því sem heyið er þurrara.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH