Brautskráning frá Hólaskóla
Brautskráning frá Hólaskóla vorið 2011 fór fram í gær.
“Hátíðahöldin hófust kl. 13:00 á reiðvellinum framan við Þráarhöllina, með reiðsýningu útskriftarnema í þjálfun og reiðkennslu. Brautskráningarathöfnin fór síðan fram í Hóladómkirkju, og hófst hún upp úr kl. 14:00. Athöfnin var með hefðbundnu sniði og auk afhendingar brautskráningarskírteina fól dagskráin í sér ávörp, tónlistaratriði og afhendingu viðurkenninga. Að ávarpi rektors loknu sáu deildarstjórar um sjálfa brautskráninguna. Alls voru 47 nemar brautskráðir, með samtals 49 skírteini þar sem tveir þeirra voru nú formlega að ljúka tveimur brautum,” segir á heimasíðu Hólaskóla.
“Félag tamningamanna veitir árlega tamningabikarinn, þeim nemanda er hlýtur hæstu einkunn á tamningaprófí. Handhafi tamningabikarsins árið 2011 er Hekla Katharina Kristinsdóttir. Hefð er fyrir því að formaður Félags tamningamanna mæti á brautskráningarathöfn Hólaskóla og færi nýútskrifaða þjálfara og reiðkennara í einkennisjakka félagsins. Formaður er nú Sigrún Ólafsdóttir, og annaðist hún þetta ánægjulega embættisverk. Í þessum hópi (diplóma í þjálfun og reiðkennslu) eru veitt fern verðlaun. Félag tamningamanna veitir reiðmennskuverðlaun FT og koma þau í hlut þess nema er hlýtur hæstu einkunn í reiðmennsku og þjálfun. Verslunin Ástund veitir Ástundarhestinn, fyrir hið sama. LH-styttan er veitt þeim er hlýtur hæstu einkunn í reiðkennslu og kennslufræði. Og Morgunblaðið veitir Morgunblaðshnakkinn, þeim nemanda er hlýtur hæstu lokaeinkunn á brautinni. Er skemmst frá því að segja að allar þessar viðurkenningar féllu Sylvíu Sigurbjörnsdóttur í skaut.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH