KB-mótaröð: Fimmgangur og T2
Þriðja mót KB mótaraðarinnar fer fram sunnudaginn 18. mars í Faxaborg Borgarnesi. Mótið er öllum opið og hefst keppni stundvíslega kl. 11.
Keppt verður í Slaktaumatölti í öllum flokkum (frjáls ferð, hægt tölt, snúið við og taumur gefinn), en T7 í barnaflokk (frjáls ferð, hægt tölt, áseta og stjórnun dæmt).
Einnig er keppt í fimmgangi í 1 flokk og opnum flokk.
Dagskrá:
- Hefst á forkeppni í slaktaumatölti í þessari röð; Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2 flokkur, 1 flokkur og opinn flokkur og síðan 1 flokkur og opinn flokkur í fimmgang.
- Hlé í 20 mín.
- Úrslit riðin í sömu röð og forkeppni.
Skráningar þurfa að berast á netföngin [email protected], [email protected], eða í símum 6910280/699 6116 fyrir kl. 23.00 miðvikudagskvöldið 14 mars. Eftirtalið þarf að koma fram, nafn knapa og kennitala, IS númer hests, upp á hvora hönd er riðið, hvaða flokk og fyrir hvaða lið er keppt ef viðkomandi er í liði, skráningargjald er 2000 kr en 1000 kr fyrir annan hest og börn og unglinga. Greiðist inn á reikning 0326-26-004810 kt;481079-0399 og kvittun sendist á netfangið [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa og hest er verið að borga, greiðist í síðasta lagi fimmtudaginn 15 mars annars er viðkomandi ekki settur á ráslista.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að almennar reglur um fóta- og beislabúnað gilda.
Þetta er lokamótið og mikið verður um verðlaunaafhendingar, því til mikils að vinna þar sem úrslit ráðast ekki fyrr en á lokamínútu um hver ber sigur af hólmi í einstaklings og liðakeppninni.
Frítt inn í höllina og veitingar seldar á staðnum.
Stíupláss til leigu pantanir berist [email protected] eða 8951748.
Vonumst til að sjá sem flesta
Mótanefnd Faxa og Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH