Sölusýning í Hestheimum 9. október

  • 3. október 2011
  • Fréttir
Sölusýning í Hestheimum 9. október

Önnur sölusýning vetrarins í Hestheimum verður haldin sunnudaginn 9. október kl. 14 að því er fram kemur á vefsíðu Hestheima.,

 
„Sölusýningar í Hestheimum hafa verið haldnar við góðan orðstýr í 11 ár ! Mikill fjöldi góðra gesta og söluhesta eru skýringar á vinsældum sölusýninganna. Síðasta sölusýningin fyrir áramót verður svo sunnudaginn 6. nóvember.
Byrjað verður á stuttum fyrirlestrum og/eða sýnikennslu og hefst sú dagskrá kl 13:30. Sölusýning hefst síðan kl 14:00.
Skráningar skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl 23:59 fimmtudagskvöld 8.sept.
Taka skal fram: Nafn , lit og IS-númer hests, einnig nafn, símanúmer og netfang eiganda/umráðamanns , nafn knapa, í hvaða verðflokk hesturinn fer, ásamt lýsingu. 
Skráningargjald er 3.500,- kr á hvern hest og skal greiðast inn á reikning 0308-13-300725, kt:031277-3619.
Verið innilega velkomin í Hestheima, ókeypis aðgangur.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link