Skilvirkari kynbótasýningar með framlagi allra sem þar starfa

  • 18. maí 2024
  • Fréttir
Röðun hrossa á fyrstu kynbótasýningu ársins liggur fyrir

Fyrsta kynbótasýning ársins á Íslandi fer fram á Rangárbökkum dagana 27. – 31. maí. Dómarar á sýningunni eru Eyþór Einarsson, Friðrik Már Sigurðsson og Þorvaldur Kristjánsson. Á heimasíðu RML birtist í gær frétt þess efnis að röðun hrossa lægi fyrir, hana má skoða með þvi að smella hér.

Í þeirri sömu frétt segir að með aðeins breyttu fyrirkomulagi vonast RML til þess að tímasetningar á sýningum haldist betur en oft hefur verið.  Til þess að það gangi þurfa allir að leggja sig fram, dómarar, eigendur, sýnendur og annað starfsfólk. Biðlar RML til sýnenda og eigenda hross að mæta tímanlega svo hægt sé að hefja mælingar á tilsettum tímum.

Mælingar hefjast kl. 7:50 í morgunholli og þá þurfa hross að vera mætt og tilbúin í mælingu, þannig að dómstörf geti hafist kl. 8:00. Sama á við um hollið eftir hádegið, dómar hefjast kl. 12:30 og þá þurfa hross að vera mætt í mælingu kl. 12:20 og fyrstu hross eftir kaffið þurfa að vera mætt 15:50.

Fréttina á vef RML má lesa í heild sinni með því að smella hér.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link