Nils-Christian á toppnum í fimmgangi
Nils-Christian Larsen og Gustur vom Kronshof. Ljósmynd: Ulrich Neddens/Eyja.net
Keppni hélt áfram á Kronshof í Þýskalandi í dag. Þar fór m.a. fram forkeppni í fimmgangi og tölti fullorðinna auk fyrri tveggja umferð í 250 og 150 metra skeiði.
Sýnt er beint frá mótinu og hægt að tryggja sér aðgang að útsendingunni með því að smella hér. Hægt er að horfa rúmlega 700 hross bæði í beinni og eins er hægt að horfa á allt efni eftir á.
Í fimmgangi eru þrjú efstu hrossin öll ræktuð frá Kronshof. Nils-Christian Larsen á Gusti vom Kronshof er efsturmeð 7,47 í einkunn í öðru sæti er Frauke Schenzel á Náttdísi vom Kronshof með 7,40 og í því þriðja er Finja Polenz á Nótt vom Kronshof með 7,03.
Jóhann Rúnar Skúlason heldur áfram að gera það gott á Evert frá Slippen en þeir tróna nokkuð örugglega á toppnum í tölti T1 með 8,13 í einkunn. Frauke Schenzel er önnur á Lýdíu frá Eystri-Hól með 7,67 og í því þriðja er Susanne Birgisson á Kára von der Hartmühle með 7,53 í einkunn.

Jóhann Rúnar Skúlason og Evert frá Slippen í tölti. Ljósmynd: Ulrich Neddens/eyja.net
Steffi Plattner á Ísleifi vom Lipperthof á besta tímann í 250 metra skeiði 23,08 sekúndur og Siggi Narfi Birgisson á besta tímann í 150 metra skeiði á Snarpi frá Nýjabæ 15,45 sekúndur en þriðja og fjórða umferð fer fram á morgun.
Á morgun fara auk skeiðgreina fram hin ýmsu b-úrslit en hápunkturinn verður á sannkallaðri úrslitaveislu og 100 metra skeiði á mánudaginn.
Efstu 5 í 250 metra skeiði
| Sæti | Knapi | Hestur | Tími |
| 1 | Steffi Plattner | Ísleifur vom Lipperthof | 23,08″ |
| 2 | Siggi Narfi Birgisson | Randver frá Þóroddsstöðum | 23,45″ |
| 3 | Steve Köster | Símon frá Efri-Rauðalæk | 23,67″ |
| 4 | Antonia Mehlitz | Ópal fra Teland | 23,86″ |
| 5 | Beggi Eggertsson | Tangó frá Litla-Garði | 23,97″ |
Efstu 5 í 150 metra skeiði
| Sæti | Knapi | Hestur | Tími |
| 1 | Siggi Narfi Birgisson | Snarpur frá Nýjabæ | 15,45″ |
| 2 | Siggi Narfi Birgisson | Sneis frá Ytra-Dalsgerði | 15,63″ |
| 3 | Clara Friedrich | Hausti frá Kagaðarhóli | 16,10″ |
| 4 | Maike Greve | Aragon frá Lambanesi | 16,38″ |
| 5 | Inga Renzelmann | Aðall frá Hlíðarbergi | 16,53″ |
Efstu tíu í fimmgangi F1
| Sæti | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Nils-Christian Larsen | Gustur vom Kronshof | 7.47 |
| 2 | Frauke Schenzel | Náttdís vom Kronshof | 7.40 |
| 3 | Finja Polenz | Nótt vom Kronshof | 7.03 |
| 4.1 | Lilja Thordarson | Ófeigur frá Árbæjarhjáleigu II | 6.93 |
| 4.2 | Elisa Graf | Óskasteinn vom Habichtswald | 6.93 |
| 6 | Sasha Sommer | Kunningi frá Hofi | 6.90 |
| 7 | Milena Hofmann | Herion von Hof Osterkamp | 6.83 |
| 8.1 | Franziska Müser | Spá frá Kvistum | 6.80 |
| 8.2 | Sina Günther | Nökkvi frá Hrísakoti | 6.80 |
| 10 | Frauke Schenzel | Pála vom Kronshof | 6.67 |
| 11.1 | Antonia Mehlitz | Eldur frá Hrafnsholti | 6.63 |
Efstu 10 í tölti T1
| Sæti | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Jóhann Rúnar Skúlason | Evert fra Slippen | 8.13 |
| 2 | Frauke Schenzel | Lýdía frá Eystri-Hól | 7.67 |
| 3 | Susanne Birgisson | Kári von der Hartmühle | 7.53 |
| 4 | Anna-Lisa Zingsheim | Glaður frá Kálfhóli 2 | 7.27 |
| 5 | Irene Reber | Dáð frá Tjaldhólum | 7.23 |
| 6 | Styrmir Árnason | Özur frá Ásmundarstöðum 3 | 7.17 |
| 7 | Laura Midtgård Hansen | Gimsteinn frá Íbishóli | 7.13 |
| 8 | Teresa Schmelter | Sprengja frá Ketilsstöðum | 7.00 |
| 9.1 | Sina Günther | Njörður frá Feti | 6.93 |
| 9.2 | Beeke Köpke | Múli frá Bergi | 6.93 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH