Forkeppni í ungmennaflokki í Gæðingamóti Fáks var að ljúka. Keppnin er bæði hörð og spennandi og aðeins brotabrot aðskilja efstu knapa.
Sara Sigurbjörnsdóttir og Ögri frá Hólum stendur efst með einkunnina 8,50 en þau kepptu einnig í gær í B-flokki gæðinga og eru í 4. sæti þar eftir forkeppni. Edda Hrund Hinriksdóttir er önnur með einkunnina 8,48 á Hæng frá Hæl en hún festi nýlega kaup á klárnum, sem best er þekktur fyrir að vera keppnishestur Ríkharðs Flemming Jensen. Flosi Ólafsson og Garrasonurinn Hvinur frá Vorsabæ 1 eru þriðju með einkunnina 8,46 en Teitur Árnason og Borði frá Felskoti eru aðeins einni kommu á eftir þeim.
Úrslit í ungmennaflokki fara fram á sunnudag kl. 14.30.
Þess má geta að Fákur sendir út beinar fréttir á Facebook síðu sinni og má þar nálgast nýjustu upplýsingar af mótinu.
Hér eru úrslit úr forkeppninni.
1 Sara Sigurbjörnsdóttir / Ögri frá Hólum 8,50
2 Edda Hrund Hinriksdóttir / Hængur frá Hæl 8,48
3 Flosi Ólafsson / Hvinur frá Vorsabæ 1 8,46
4 Teitur Árnason / Borði frá Fellskoti 8,45
5 Agnes Hekla Árnadóttir / Vignir frá Selfossi 8,43
6 Óskar Sæberg / Fálki frá Múlakoti 8,40
7 Ragnar Tómasson / Hruni frá Breiðumörk 2 8,37
8 Sara Sigurbjörnsdóttir / Ísak frá Oddhóli 8,37
9-10 Arna Ýr Guðnadóttir / Þróttur frá Fróni 8,36
9-10 Julia Lindmark / Lómur frá Langholti 8,36
11 Kári Steinsson / María frá Feti 8,35
12 Teitur Árnason / Óskar Örn frá Hellu 8,34
13 Hrafnhildur Sigurðardóttir / Faxi frá Miðfelli 5 8,33
14-15 Julia Lindmark / Kall frá Dalvík 8,31
14-15 Edda Rún Guðmundsdóttir / Gljúfri frá Bergi 8,31
16 Kári Steinsson / Tónn frá Melkoti 8,31
17 Erla Katrín Jónsdóttir / Vænting frá Ketilsstöðum 8,28
18 Þórdís Jensdóttir / Gramur frá Gunnarsholti 8,28
19 Aníta Ólafsdóttir Releford / Fengur frá Hofsstöðum 8,27
20 Kristín Ísabella Karelsdóttir / Flísi frá Hávarðarkoti 8,23
21 Erla Katrín Jónsdóttir / Hjaltalín frá Oddhóli 8,22
22 Edda Hrund Hinriksdóttir / Ás frá Káragerði 8,21
23 Elsa Hreggviðsdóttir Mandal / Bróðir frá Auðsholtshjáleigu 8,16
24 Rúna Helgadóttir / Prúður frá Laxárnesi 8,16
25 Steinn Haukur Hauksson / Heron frá Seljabrekku 8,12
26 Ragnar Tómasson / Svört frá Skipaskaga 8,08
27 Elsa Hreggviðsdóttir Mandal / Spegill frá Auðsholtshjáleigu 8,04
28 Ragna Brá Guðnadóttir / Einar-Sveinn frá Framnesi 8,04
29 Halldóra Baldvinsdóttir / Hjálprekur frá Torfastöðum 8,00
30 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir / Hylur frá Bringu 7,96
31 Hrafn H.Þorvaldsson / Mökkur frá Hólshúsum 7,69
32 Ragnar Tómasson / Ymur frá Reynisvatni 0,00