Gullmótið og úrtaka fyrir HM
Gullmótið verður haldið dagana 15. – 19. júní nk. í samvinnu við hestamannafélagið Sörla að Sörlastöðum í Hafnafirði.
Á mótinu verður úrtaka fyrir Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum og er ætlað þeim allra sterkustu.
Keppt verður í þremur flokkum: Unglingar, Ungmenni og Opin flokkur.
Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
Tölt, T2, Fjórgangur, Fimmgangur, Gæðingaskeið, 100 metra skeið og 250 metra skeið.
Skráning hefst 7. júní en tekið verður á móti skráningum í símum 893-3559, 692-7779, 894-6611 og 587-7565.
Við skráningu skal gefa upp nafn og kennitölu knapa, IS-númer, nafn og uppruna hests, í hvaða flokk á að skrá og kortanúmer fyrir skráningargjöldum.
Verð fyrir hverja skráningu er 5.000 kr.
Gefa skal upp ef skráður er úrtökuhestur fyrir HM. Skráningagjöld fyrir þá er 10.000 kr. Keppendur í úrtöku eru hvattir til að kynna sér lykil að vali Íslenska landsliðsins.
Járningamannafélag Íslands mun sjá um fótaskoðun fyrir HM úrtökuhesta. Farið verður eftir reglum FIPO um leyfilegan fótabúnað.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH