Síðasti skráningardagur á Ís-landsmótið
Laugardaginn 5. mars verður Ís-landsmótið haldið á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu. Keppt verður í A- og B-flokki og Opnum flokki í tölti.
Í fréttatilkynningu frá mótshöldurum segir að ísinn sé afskaplega góður, sléttur og traustur.
„Skráningar berist á netfangið [email protected] í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 – 13 – 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa er verið að borga.“
Nánari upplýsingar má einnig nálgast á heimasíðu mótsins hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH