Styttist í héraðssýningu í Skagafirði
Héraðssýning kynbótahrossa í Skagafirði verður haldin á Vindheimamelum 30. maí til 4. júní.
Skráning fer fram dagana 23. – 26. maí á Leiðbeiningamiðstöðinni. Nánar auglýst síðar.
Mikilvægt að stóðhestseigendur muni að DNA sýni þarf að liggja fyrir úr öllum stóðhestum og foreldrum þeirra. Eins þarf að vera búið að taka blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum 5 vetra og eldri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH